Fréttir
-
14. maí 2012
Ráðgjafi og sjónfræðingur á Akureyri
Ráðgjafi og sjónfræðingur frá Miðstöðinni verða á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 31. maí - 1.júní nk.
-
2. maí 2012
Námskeið í líkamsþjálfun
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð býður upp á hópþjálfun í líkamsþjálfun í samstarfi við sjúkraþjálfunina Afl.
-
25. apríl 2012
Sumarnámskeið Miðstöðvarinnar
Áætlað er að halda sumarnámskeið Miðstöðvarinnar fyrir börn á aldrinum 6-12 ára þann 12.-15.júní frá kl. 09-14.
-
16. mars 2012
SensAge: samstarfsverkefni Miðstöðva í Evrópu
SensAge er samstarfsverkefni 15 aðila í Evrópu og Kanada. Markmið SensAge er að vera miðpunktur öflunar, greiningar og miðlunar fræðsluefnis og vinnuaðferða sem stuðla að virkri öldrun Evrópubúa með skerðingu á skilningarvitum, gerir þeim kleift að lifa sjálfstæðu lífi og eykur lífsgæði og félagslega þátttöku þeirra.
-
15. mars 2012
Evrópuverkefni um viðbótarfatlanir
Miðstöðin hefur tekið að sér að leiða evrópuverkefni alls 15 fagaðila og stofnanana er koma að blindu/sjónskertu fólki með viðbótarfatlanir (MDVI).
-
14. mars 2012
Slökkviliðsmenn læra notkun hvíta stafsins við reykköfun
Slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu sitja nú námskeið til að kynna sér aðferðir fyrir blinda við að rata og átta sig á umhverfinu, m.a. með notkun hvíta stafsins. Kenndar eru leiðir við að skynja hljóð og rými með nýjum aðferðum sem geta komið sér vel við reykköfun.
-
22. febrúar 2012
Uppeldisfjölskyldur fyrir leiðsöguhunda
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga óskar eftir uppeldisfjölskyldum fyrir leiðsöguhunda.
-
9. febrúar 2012
Auglýsing frá Miðstöðinni um hjálparhunda
Samkvæmt reglugerð er fötluðu fólki heimilt að hafa með sér hjálparhunda á: gististaði, veitingastaði, í skóla, á snyrtistofur og hársnyrtistofur, heilbrigðisstofnanir, íþrótta- og baðstaði, fangelsi og samkomuhús, enda sé hinum fatlaða ótvíræð nauðsyn að hjálparhundi.
-
9. febrúar 2012
Miðstöðin leitar eftir efnilegum unghundum sem hentað gætu til þjálfunar á leiðsöguhundum.
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga leitar eftir efnilegum unghundum sem hentað gætu til þjálfunar á leiðsöguhundum.
-
13. janúar 2012
Hópþjálfun í líkamsþjálfun í samstarfi við Sjúkraþjálfunina Afl.
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð býður upp á hópþjálfun í líkamsþjálfun í samstarfi við Sjúkraþjálfunina Afl. Þjálfunin er ætluð sjónskertum og blindum einstaklingum sem vilja bæta líkamlegan styrk og auka úthald.
-
12. janúar 2012
Ítarlegt yfirlit um rafbækur og aðgengi þeirra
Rafbækur og rafbókalausnir eru teknar fyrir og útskýrt hver staðan er varðandi aðgengi.
-
6. janúar 2012
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð heldur námskeið fyrir kennara og stuðningsfulltrúa blindra og sjónskertra nemenda
Helstu áherslur á námskeiðinu eru hvernig kennarar geta sinnt kennslu blindra/sjónskerta nemenda en jafnframt mætt þörfum allra nemenda.
-
6. janúar 2012
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð í samstarfi við Blindrafélagið býður upp á námskeið í minnistækni.
Námskeiðið er ætlað sjónskertum og blindum einstaklingum sem vilja bæta minnið sitt.
-
4. janúar 2012
Námskeið - Þjónusta við blinda og sjónskerta einstaklinga
Þjónusta við blinda og sjónskerta einstaklinga - Námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands í samvinnu við Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.
-
4. janúar 2012
Alþjóðlegi Braille dagurinn 4. janúar
Frakkinn Louis Braille fæddist 4. janúar 1809. Af því tilefni er dagurinn tileinkaður honum.
-
15. desember 2011
Gleðileg jól!
Þjónustu-og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýárs, með þökkum fyrir gott samstarf á árinu sem er að líða.
-
15. desember 2011
Afgreiðslutími um jólin
Opið verður milli 9-16 dagana 27.-30. desember. Lokað er á þorláksmessu, aðfangadag og gamlársdag.
-
8. desember 2011
Myndir frá jólabingói
Jólabingó var haldið fyrir yngri kynslóðina.
-
16. nóvember 2011
Karl og Dóra: Nýjar íslenskar talgervilsraddir
Á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember 2011, verður kynntur mikilvægur áfangi í Talgervilsverkefni Blindrafélagsins.
-
15. nóvember 2011
Blindrafélagið styrkir leiðsöguhundaverkefni
Miðstöðinni hefur borist rausnarlegur styrkur frá Blindrafélaginu að upphæð tvær milljónir króna vegna leiðsöguhunda
-
15. nóvember 2011
Bækur fyrir jólin
Miðstöðin mun bjóða upp á bækur á punktaletri eins og undanfarin ár.
-
7. nóvember 2011
Sjóðurinn Blind börn færði Miðstöðinni veglega gjöf á dögunum
Sjóðurinn gaf Ipad spjaldtölvu sem mun verða notuð til prófann með sjónskertum nemendum.
-
3. nóvember 2011
Jólabingó fyrir nemendur sem nota punktaletur eða stækkað letur.
Fimmtudaginn 1. desember mun Miðstöðin halda jólabingó fyrir nemendur sem nota punktaletur eða stækkað letur frá 15-17 í húsnæði Miðstöðvarinnar
-
11. október 2011
Fyrirlestur um gláku og glákuvarnir í tilefni af Alþjóðlegum sjónverndardegi
Fimmtudaginn 13. október kl 17:00, á alþjóðlegum sjónverndardegi, verður Guðmundur Viggósson augnlæknir með fyrirlestur um gláku og glákuvarnir í fundarsalnum í Húsi Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17.
-
11. október 2011
Dagur hvíta stafsins: Opið hús að Hamrahlíð 17 laugardaginn 15. október.
Í tilefni af degi Hvíta stafsins, laugardaginn 15. október næstkomandi verður opið hús að Hamrahlíð 17, í Húsi Blindrafélagsins milli kl. 14.00 og 16.00
-
23. september 2011
Námskeið í hljóðlýsingum: hinu sjónræna umbreytt í orð
Hljóðlýsingar snúast um að gera myndir aðgengilegar fyrir sjónskerta og blinda einstaklinga. Það er gert með því að notast við hugmyndaríkan og líflegan orðaforða. Þátttakendur í námskeiðinu munu fá reynslu af því hvernig greinargóðar lýsingar geta gert sjónrænar upplifanir ánægjulegri fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga.
-
22. ágúst 2011
Námskeiðsdagur fyrir kennara
Námskeiðsdagur fyrir kennara var haldinn 16. ágúst síðastliðinn. Námskeiðið heppnaðist vel og var vel sótt. Í boði voru þrjú mismunandi námskeið. Eitt námskeið var í þreifibókagerð, námskeið í undirstöðum þess að vinna með nemendur í umferli og ADL og þriðja námskeiðið var um aðgengi og útfærsla á námsefni fyrir blinda og sjónskerta nemendur.
-
5. júlí 2011
Ný námskeið í boði hjá Miðstöðinni.
"Út að ganga" og "Nótur á punktaletri" fyrir notendur Miðstöðvarinnar og kynning um punktaletursnótur fyrir tónlistarkennara.
-
29. júní 2011
Útgáfa: Norrænn leiðarvísir um síðdaufblindu og Norrænn leiðarvísir um meðfædda daufblindu
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga hefur gefið út í samvinnu við Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra tvö ný rit sem eru leiðarvísar um meðfædda daufblindu og síðdaufblindu. Ritin voru gefin út á alþjóðadegi daufblindra 27. júní sem er fæðingardagur Helen Keller.
-
24. júní 2011
Velheppnað barnanámskeið
Dagana 8.-10. júní fór fram barnanámskeið á vegum miðstöðvarinnar. Níu börn á aldrinum 7 til 13 ára tóku þátt. Hér var um þriggja daga námskeið að ræða og ýmislegt gert til að fræða og skemmta börnunum. Barnanámskeið hafa verið haldinn árlega oftast í byrjun sumars og verið vel sótt. Þarna geftst börnunum tækifæri til að kynnast innbyrðis og að prófa og læra nýja hluti. Það er mat okkar sem komu að námskeiðinu að þessu sinni að vel hefur tekist til og vonandi verður annað námskeið að ári liðnu.
-
23. júní 2011
Alþjóðlegur dagur fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
Félagið Fjóla - félag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu heldur upp á alþjóðlegan dag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu mánudaginn 27. júní 2011 í Hamrahlíð 17 á annarri hæð. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá auk þess sem hægt verður að skoða hjálpartæki og kynna sér samskiptaleiðir. Veitingar verða í boði.
-
20. júní 2011
Nýtt nafn Daufblindrafélags Íslands: Fjóla - félag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu
Tillaga að breytingu á nafni Daufblindrafélags Íslands var samþykkt einróma á framhaldsaðalfundi félags fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu (áður Daufblindrafélag Íslands) þann 3. júní 2011 og heitir félagið nú Fjóla - félag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
-
16. júní 2011
Norrænar tónlistarbúðir í október
Í lok október verða haldnar norrænar tónlistarbúðir í Danmörku þar sem einstaklingar frá Norðurlöndunum hittast og spila saman. Íslendingum býðst að taka þátt í þessu verkefni í fyrsta skipti nú í ár og leitum við um þessar mundir að einstaklingum sem hafa áhuga á að vera þátttakendur.
-
16. júní 2011
Punktaletursnótur - nýjung á Íslandi
Dagana 18-20. maí síðastliðinn fóru 4 einstaklingar á vegum Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvarinnar til Noregs til að fylgjast með námskeiði í punktaletursnótum. Tilgangur ferðarinnar var til að kynna sér nánar punktaletursnótur, gerð námsefnis á punktaletursnótum, kennsluaðferðir o.fl.
-
3. júní 2011
Punktaletur staðfest í lögum
Nýverið voru samþykkt á Alþingi ný lög um íslenskt mál. Í lögunum er kveðið á um rétt blindra og sjónskertra til notkunar punktaleturs. Þetta er mikil framför og löngu tímabær staðfesting á rétti þeirra sem nýta sér punktaletur.
-
1. júní 2011
Ný námskeið i boði hjá Miðstöðinni
Þriðjudaginn 16. ágúst verður námskeiðsdagur fyrir starfsfólk leik,- grunn,- og framhaldsskóla. Nánari upplýsingar er að finna undir hlekknum námskeið.
-
30. maí 2011
Góð upplýsingasíða um sjónskerðingu á netinu
Heimasíðan Evision55plus er afrakstur evrópuverkefnis þar sem tekið var saman efni fyrir sjónskerta og sett upp í þægilegt fræðsluform.
-
2. maí 2011
Þreifibækur fyrir blind börn
Síðastliðin tvö ár hefur Miðstöðin unnið að áhugaverðu verkefni í samstarfi við myndmenntakennara Lindaskóla í Kópavogi og nemendur í 3. bekk. Miðvikudaginn 4. maí verða bækurnar afhentar við formlega athöfn í Lindaskóla.
-
27. apríl 2011
Lög um leiðsöguhunda í fjölbýli samþykkt
Lög um leiðsöguhunda í fjölbýli voru samþykkt á Alþingi
-
13. apríl 2011
Íva Marín Adrichem sigraði í ritgerðarsamkeppni Lions um frið
Íva Marín Adrichem sigraði í ritgerðarsamkeppni Lions um frið. Keppnin er alþjóðleg og er ætluð blindum og sjónskertum ungmennum á aldrinum 11-13 ára.
-
29. mars 2011
Robobraille breytir svartletri í punktaletur
Í gegnum vefsíðu Robobraille er hægt að breyta skjali í punktaletur.
-
9. febrúar 2011
Nýr íslenskur talgervill
Blindrafélagið hefur tekið ákvörðun um að hafa forgöngu um smíði á nýjum íslenskum talgervli sem stenst samanburð við það besta sem þekkist í erlendum málum.
-
3. janúar 2011
Velferðarráðuneytið tekur til starfa
Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin heyrir nú undir hið nýja velferðarráðuneyti er varð til um áramótin við sameiningu heilbrigðisráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins.
-
13. desember 2010
Jólakveðja
Þjónustu-og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýárs, með þökkum fyrir gott samstarf á árinu sem er að líða.
-
1. desember 2010
Miðstöðin fær viðurkenningu fyrir Grundtvig-samstarfsverkefni
Miðstöðin fær gæðaviðurkenningu fyrir Grundtvig-samstarfsverkefnið sem skoðaði menntun og atvinnumöguleika blindra og sjónskertra einstaklinga með viðbótarfatlanir.
-
15. nóvember 2010
Fyrsta endurhæfingaríbúðin fyrir blinda og sjónskerta vígð
Þriðjudaginn 2. nóvember síðastliðinn var fyrsta hæfingar og endurhæfingaríbúð sem ætluð er blindum og sjónskertum einstaklingum á Íslandi vígð. Íbúðin er í húsi Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17 í Reykjavík. Vígslan fór fram með afhendingu lykla til Guðfinns Karls Vilhelmssonar en hann er fyrsti íbúinn. Hann fékk lyklana afhenta frá Láru Björnsdóttur, sviðsstjóra í Félags- og tryggingamálaráðuneytinu.
-
14. nóvember 2010
Fróðlegur fyrirlestur
Miðvikudaginn 10. nóvember sl. var haldinn fyrirlestur í húsnæði Miðstöðvarinnar og bar hann yfirskriftina Systkini fatlaðra barna.
-
8. nóvember 2010
Góð þátttaka á degi hvíta stafsins
Þann 15. október síðastliðinn var alþjóðlegur dagur hvíta stafsins. Miðstöðin og Blindrafélagið stóðu sameiginlega að dagskrá sem hófst með göngu niður Laugaveginn og tóku margir þátt í göngunni.
-
8. nóvember 2010
Ráðgjafar á vakt
Á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 15:00-16:00 verður ráðgjafi með vakt þar sem notendur Miðstöðvarinnar geta hringt eða komið. Þessi þjónusta er einungis hugsuð fyrir aðkallandi erindi og minniháttar viðvik t.d. fyrirspurnir eða biluð hjálpartæki sem þarf að laga.
-
1. nóvember 2010
Fyrsta endurhæfingaríbúðin fyrir blinda og sjónskerta vígð.
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi og Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga taka í notkun fyrstu íbúðina sem ætluð er til hæfingar og endurhæfingar. Verkefnið er samstarfsverkefni Blindrafélagsins og Miðstöðvarinnar og mun fyrsti einstaklingurinn byrja í hæfingu fimmtudaginn 4. nóvember.
-
12. október 2010
DAGUR HVÍTA STAFSINS
Vikuna 8. til 15. október 2010 er alþjóðleg sjónverndarvika sem haldin er hátíðleg, um allan heim. Viku þessari lýkur með degi hvíta stafsins þann 15. október, alþjóðlegum baráttudegi blindra og sjónskertra einstaklinga. Þennan dag nota blindir og sjónskertir til að vekja athygli á málstað sínum og m.a. til að kynna hvíta stafinn.
-
7. október 2010
Kynning á þreifibókum fyrir blind börn
Á sameiginlegum skipulagsdegi í Grunnskólum Kópavogs, 1. október sl. voru þreifibækur fyrir blind börn kynntar. Yfirskrift skipulagsdagsins var Sjálfbær þróun og grenndarsamfélagið. Þreifibókarverkefnið var samstarfsverkefni Lindaskóla og Þjónustu- og þekkingarmiðstöðar fyrir blinda, sjónskerta og daufblindra einstaklinga.
-
9. september 2010
Notkun punktaleturskubba við ritmálsörvun í leikskóla
Út er komin skýrsla vegna þróunarverkefnis um notkun punktaleturskubba í tengslum við ritmálsörvun í leikskóla. Skýrslan er fáanleg á heimasíðu Miðstöðvarinnar.
-
7. september 2010
Miðstöðin fær bókargjafir frá Ragnhildi Björnsdóttur blindrakennara
Miðstöðinni hefur verið afhent rausnarleg bókargjöf
-
26. ágúst 2010
Fyrirlestraröð haustið 2010
Fyrirlestraröð fyrir haustið 2010 er nú tilbúin og er að finna undir flipanum "Námskeið".
-
5. júlí 2010
Námskeiðsáætlun haust og vetur 2010
Námskeiðsáætlun tímabilsins september til desember 2010 er nú tilbúin og er að finna undir flipanum námskeið.
-
24. júní 2010
Dagana 14.-16. júní sl. hélt Miðstöðin sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum 8-12 ára.
Dagana 14.-16. júní sl. hélt Miðstöðin sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum 8-12 ára. Ýmislegt var gert á námskeiðinu, m.a. útbúin veisla fyrir foreldra og aðstandendur og farið var í fjöruferð.
-
4. júní 2010
Íslenska komin inn í hið alþjóðlega Robobraille-kerfi.
Dagana 31. maí til 3. júní komu hingað til lands fulltrúar frá danska fyrirtækinu Robobraille. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu punktaleturs í gegnum tölvupóst og var íslensku bætt við þjónustu þeirra á meðan á heimsókninni stóð.
-
3. júní 2010
Norræn ráðstefna um punktaletur var haldin í Reykjavík dagana 27. og 28. maí.
Þetta er í fyrsta skipti sem ráðstefnan fer fram á Íslandi en hún hefur verið haldin um áratuga skeið. Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin sá um skipulagningu ráðstefnunnar að þessu sinni.
-
21. maí 2010
3. bekkur í Lindaskóla gerir þreifibækur fyrir blind börn.
Eitt af verkefnum Miðstöðvarinnar er að sjá um yfirfærslu ritefnis á form sem hentar blindum og sjónskertum einstaklingum. Þreifibækur eru bækur með upphleyptum myndum sem hægt er skoða með fingrunum. Leitað var eftir samstarfi við nemendur í 3. bekk í Lindaskóla í Kópavogi um gerð nokkurra bóka af þessu tagi.
-
11. maí 2010
Ábendingar um námskeið
Frestur til að skila inn óskum eða hugmyndum að námskeiðum fyrir tímabilið ágúst-desember 2010 er til 10. júní 2010.
-
30. apríl 2010
Námskeiðsáætlun fyrir NVC Danmark í Dronninglund haustið 2010
NVC stendur fyrir Nordens velfærdscenter. Þar eru skipulögð námskeið fyrir starfsfólk sem vinnur með daufblindum einstaklingum.
-
7. apríl 2010
Leiðsöguhundar
Hvað gera leiðsöguhundar?
-
23. mars 2010
Ný reglugerð um úthlutun hjálpartækja
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur sett nýja reglugerð um úthlutun hjálpartækja
-
3. mars 2010
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga gengur í Enviter; Evrópusamtök miðstöðva fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga
Enviter eru Evrópusamtök miðstöðva fyrir blinda og sjónskerta um alla Evrópu.
-
19. janúar 2010
Ritgerðasamkeppni Evrópusambands blindra (European Blind Union)
Evrópusamband blindra (EBU) ásamt Onkyo og Braille Mainichi standa fyrir ritgerðasamkeppni. Í ritgerðinni eiga þátttakendur að segja frá því hvernig punktaletur hefur hjálpað þeim í daglegu lífi.
-
22. desember 2009
Gleðileg jól!
Þjónustu-og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýárs, með þökkum fyrir gott samstarf á árinu sem er að líða.
-
21. desember 2009
Úthlutun úr Þórsteinssjóði
Á alþjóðadegi fatlaðs fólks fimmtudaginn 3. desember 2009 var í þriðja skipti úthlutað námsstyrk til blindra og sjónskertra stúdenta við Háskóla Íslands. Styrkhafi var Helga Theódóra Jónasdóttir, nemandi á fyrsta ári í sálfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.
-
21. desember 2009
Eyþór Þrastarson íþróttamaður fatlaðra 2009
Eyþór Þrastarson sundmaður er íþróttamaður fatlaðra árið 2009.
-
10. desember 2009
Augnlæknar og sjónfræðingar heimsóttu Miðstöðina
Fimmtudaginn 3. desember síðastliðinn bauð Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin augnlæknum og sjóntækjafræðingum í heimsókn og kynnti starfsemi Miðstöðvarinnar fyrir þeim.
-
30. nóvember 2009
Drög að reglugerð um úthlutun hjálpartækja
Miðstöðin óskar eftir umsögn notenda, fagfólks og allra þeirra sem málið varðar um drög að reglugerð um úthlutun hjálpartækja.
-
19. nóvember 2009
Myndir frá matreiðslunámskeiði með Sollu í Grænum kosti.
Haldið var námskeið í matreiðslu grænmetisrétta með Sólveigu Eiríksdóttur. Námskeiðið heppnaðist í alla staði vel og þátttakendur skemmtu sér hið besta.
-
18. nóvember 2009
Myndir frá snyrtinámskeiði
Á dögunum tóku sex konur þátt í snyrtinámskeiði á vegum Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvarinnar í samstarfi við Snyrtiakademíuna og var almenn ánægja með námskeiðið. Kennari var Sara Valný Sigurjónsdóttir förðunarfræðingur. Konurnar fengu góðar ráðleggingar varðandi förðun og umhirðu húðar og einnig hagnýt ráð varðandi förðun fyrir sjónskerta.
-
18. nóvember 2009
Augun hvíla á okkur
Sjónin er nauðsynleg til að rata um í ys og þys nútímans. Þegar hana skortir, geta einföld verkefni orðið flókin. Þess vegna er mikilvægt að blindir, sjónskertir, aðstandendur þeirra og fagfólk, hafi aðgang að bestu hugsanlegu tækni, aðstoð, þjálfun og upplýsingum á einum stað. Miðstöðin er sá staður.
-
11. nóvember 2009
Sjáðu til
Birtan er mikilvæg. Með aldrinum eykst þörfin fyrir góða lýsingu, til dæmis við handavinnu eða lestur. Rétta ljósið léttir okkur að koma auga á öll smáatriðin sem skipta svo miklu máli.
-
28. október 2009
Haldið var upp á dag hvíta stafsins 15. október síðastliðinn.
Starfsfólk Miðstöðvarinnar var á ferðinni á Háskólatorgi og í Kringlunni á degi hvíta stafsins.
-
27. október 2009
Þarf að stækka letrið?
Lestur er lífsgæði. Stækkunargler, sterk lesgleraugu og margs konar tækni gagnast þeim áfram vilja njóta þess að lesa þó að sjónin hafi versnað.
-
13. október 2009
Dagur hvíta stafsins
Fimmtudaginn 15. október 2009 verður Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga með kennslu í notkun hvíta stafsins á Háskólatorgi við Háskóla Íslands kl. 11-13 og í Kringlunni kl. 16-18.
-
5. október 2009
Prjónastund á Miðstöðinni
Boðið verður upp á prjónastundir á föstudögum frá kl. 13:30-15:30 þar sem þátttakendur koma með það sem þeir hafa á prjónunum.
-
5. október 2009
Ráðgjafi í málefnum daufblindra hefur tekið til starfa
Guðný Katrín Einarsdóttir hefur verið ráðin sem ráðgjafi í málefnum daufblindra.
-
10. ágúst 2009
Bæklingurinn "Ég skrifa með punktum" kominn út
Út er kominn bæklingurinn: Ég skrifa með punktum Áhugi ungra barna á bókstöfum, orðum og merkingu - snemmtæk örvun. Bæklingurinn er eftir danska ráðgjafann Jette Hasselström.
-
16. júlí 2009
Áhugavert verkefni í tengslum við kennslu punktaleturs.
Síðastliðinn vetur stóðu Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin og leikskólinn Sólbakki fyrir mjög áhugverðu verkefni í tengslum við kennslu punktaleturs fyrir 4 ára gamlan blindan dreng.
-
19. júní 2009
Dagana 4.-6. maí var haldin norræn ráðstefna fyrir ráðgjafa blindra og sjónskertra barna á leikskólaaldri.
Dagana 4. til 6. maí síðastliðinn var haldin norræn ráðstefna fyrir ráðgjafa blindra og sjónskertra barna á leikskólaaldri. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar var pólski sérfræðingurinn Boguslaw Marek sem hefur hannað kennsluefni fyrir blind og sjónskert börn sem kallast "Hungry fingers".
-
16. júní 2009
Mikið fjör á námskeiði í punktaletri og notkun skjálestrarbúnaðar
Nú er nýlokið námskeiði í punktaletri og notkun skjálestrarbúnaðar fyrir nemendur. Námskeiðið tókst í alla staði mjög vel og einkenndist af áhugasemi, jákvæðni og gleði eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
-
2. júní 2009
6. norræna ráðstefnan í sjónráðgjöf í Lundi í Svíþjóð
6. norræna ráðstefnan í sjónráðgjöf var haldin í Lundi í Svíþjóð dagana 13.-15. maí 2009. Rannveig Traustadóttir og Guðbjörg Árnadóttir frá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga tóku þátt í ráðstefnunni fyrir Íslands hönd.
-
28. apríl 2009
Norræn ráðstefna dagana 4.-6. maí fyrir ráðgjafa blindra og sjónskertra barna á leikskólaaldri
Dagana 4. til 6. maí næstkomandi verður haldin á Íslandi norræn ráðstefna fyrir ráðgjafa blindra og sjónskertra barna á leikskólaaldri. Þetta er í fyrsta sinn í 30 ára sögu ráðstefnunnar að hún er haldin á Íslandi og hana sækja 50 ráðgjafar frá öllum Norðurlöndunum.
-
12. mars 2009
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga hefur hlotið vottun frá fyrirtækinu Sjá ehf. um að www.midstod.is standist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða.
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga hefur hlotið vottun frá fyrirtækinu Sjá ehf. um að vefurinn www.midstod.is standist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða. Þetta er í samræmi við markmið Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar að veita gott aðgengi og vera fyrirmynd annarra í þeim efnum.
-
24. febrúar 2009
Huld Magnúsdóttir nýr forstjóri Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að skipa Huld Magnúsdóttur forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, til næstu fimm ára frá 1. mars næstkomandi.
-
23. febrúar 2009
Framleiðsla lesefnis í fullum gangi
Frá áramótum hefur Framleiðsludeild sent frá sér 111 titla á punktaletri, stækkuðu letri og rafrænu formi.
-
22. febrúar 2009
Heimsókn starfsmanna á Samskiptamiðstöð fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta.
Hafið er samstarf Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar og Samskiptamiðstöðvar fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta í málefnum daufblindra.
-
6. febrúar 2009
Heimsókn félagsmálaráðherra á Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga
Nýskipaður félagsmálaráðherra, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, heimsækir Þjónustu- og þekkingar-miðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga í dag, 6. febrúar, og opnar nýja og glæsilega heimasíðu miðstöðvarinnar, www.midstod.is.