Stjórnun
Miðstöðin heyrir undir velferðarráðuneytið.
Ráðherra skipar miðstöðinni forstjóra til fimm ára í senn og setur honum erindisbréf. Forstjóri skal hafa lokið háskólaprófi og hafa menntun og reynslu sem nýtist á starfssviði stofnunarinnar og við stjórnun hennar og rekstur. Forstjóri ber ábyrgð á rekstri stofnunarinnar og að starfsemi hennar sé í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli.
Ráðherra skipar miðstöðinni jafnframt sex manna samráðsnefnd samkvæmt tilnefningum Blindrafélags, Daufblindrafélags Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga, menntamálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis. Félags- og tryggingamálaráðherra skipar fulltrúa án tilnefningar og er hann jafnframt formaður samráðsnefndarinnar. Samráðsnefndin skal vera ráðherra og forstjóra miðstöðvarinnar til ráðgjafar um fagleg málefni.