Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga óskar eftir að ráða til starfa kennsluráðgjafa fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga.
Í starfinu felst meðal annars starfrænt mat, ráðgjöf um aðlögun á námsefni, gerð einstaklingsáætlana, kennsla punktaleturs, ritmálsörvun og mat á þörf fyrir og kennsla á hjálpartæki. Jafnframt felst starfið í ráðgjöf til nemenda vegna námstækni og aðstoð til kennara vegna kennslu í hinum ýmsu námsgreinum.
Um er að ræða 100% starf. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og sótt fjarnám í sérkennslufræðum fyrir blinda og sjónskerta erlendis en styrkur verður veittur til námsins. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Umsækjendur þurfa að hafa:
- lokið háskólanámi og hafa kennsluréttindi
- getu til að leiða árangursríkt samstarf ólíkra aðila og leysa úr ágreiningsmálum
- lipurð í mannlegum samskiptum
- skipulagshæfileika, sjálfstæði, sveigjanleika og frumkvæði í starfi
- skapandi, gagnrýna og sjálfstæða hugsun
- góða færni í ritaðri og munnlegri íslensku og ensku
Umsóknarfrestur er til 7. ágúst 2009. Umsóknir sendist til forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Huld Magnúsdóttir, forstjóri Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, í síma 5455800 eða í tölvupósti, huld@midstod.is