Námskeiðið er ætlað sjónskertum og blindum einstaklingum sem vilja bæta minnið sitt. Minnistækni býður okkur upp á að þjálfa minnið þannig að við þurfum einungis að lesa einu sinni yfir upplýsingarnar en ekki oft.
Skráning fer fram í síma 545 5800.
Námskeiðið er haldið 3. og 7. september næstkomandi.
Við eigum það til að falla í þá gryfju að til að muna þá lesum við efnið yfir aftur og aftur. Það er lúxus sem blindir og sjónskertir einstaklingar geta ekki leyft sér þar sem þeir eru oft á tíðum hægari í lestri en þeir sem hafa fulla sjón.
Hvernig nýtist minnistæki?
- Minnistækni byggir á ævafornum aðferðum sem hafa staðist tímans tönn. Kenndar verða aðferðir sem m.a. hjálpa við að:
- Takast á við hversdagsgleymsku (hvar setti ég lyklana, gleraugun, hvenær á ég tíma hjá lækninum o.s.frv.)
- Muna mikið magn upplýsinga
- Muna nöfn
- Muna ártöl og aðrar tölur
- Muna dagsetningar og atburði
- Bæta skipulagningu og tímastjórnun
Með því að beita minnistækni nýtum við tíma okkar betur, erum skipulagðari og sjálfsöryggi eykst.
Upplýsingar um námskeið
Kennari: Kolbeinn Sigurjónsson og ráðgjafar Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar.
Verð: 3000 kr.
Kennslutími: 3. september 2012 kl. 14-16 og 7. september 2012 kl. 14-16.
Kennslustaður: Salur Blindrafélagsins á 2. hæð í Hamrahlíð 17.
Fyrir: Sjónskerta og blinda einstaklinga, 60 ára og eldri, sem vilja bæta minnið sitt.
Skráning hefst: 4. júlí 2012
Skráningu lýkur: 22. ágúst 2012