Laust er til umsóknar 50% starf sjónfræðings hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Um er að ræða afleysingu frá 1. ágúst til 31. desember 2014.
Helstu verkefni:
- Mæla sjónlag og sjóngetu.
- Mat á þörf á sjónhjálpartækjum.
- Fræðsla og upplýsingar um sjón og sjónskerðingu.
- Úthlutun sjónhjálpartækja, kennsla í notkun og meðhöndlun þeirra.
Hæfniskröfur:
- Hafa lokið háskólanámi í sjónfræði eða sambærilegt nám.
- Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki og frumkvæði í starfi.
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí 2014 og þarf viðkomandi að geta hafið störf 1. ágúst 2014
Umsóknir skulu sendar rafrænt á netfangið thorbjorg@midstod.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðstöfun starfsins liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörg Gunnarsdóttir í síma 545 5800.