Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu mun úthluta leiðsöguhundum á næstu mánuðum. Leiðsöguhundar aðstoða blinda og sjónskerta einstaklinga við að komast leiðar sinnar á öruggan og sjálfstæðan hátt og er leiðsöguhundur skilgreindur sem hjálpartæki.
Finna má nánari upplýsingar um umsóknarferlið og umsóknareyðublöð á heimasíðu Miðstöðvarinnar https://www.midstod.is/leidsoguhundar/umsoknarferli/ og á skrifstofu Miðstöðvarinnar í Hamrahlíð 17.
Umsókn um leiðsöguhund skal berast miðstöðinni fyrir 20. september 2019
Umsóknir skulu merktar Miðstöðinni, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík eða sendar með tölvupósti á bjork.arnardottir@midstod.is
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, hefur verið styrktaraðili leiðsöguhundaverkefnisins frá upphafi.