Aðlögun að sjónmissi – jafningjafræðsla

Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin (Miðstöðin) býður upp á námskeiðið „Aðlögun að sjónmissi“. Næsta námskeið hefst miðvikudaginn 7. mars og er fyrir notendur Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar á aldrinum 30-60 ára. Námskeiðin fara fram í húsnæði Miðstöðvarinnar í Hamrahlíð 17.

Á námskeiðinu gefst fólki tækifæri til að koma saman, hlusta á aðra og miðla eigin reynslu til annarra sem eru að aðlagast sjónmissi og fræðast um hvaða þjónusta er í boði fyrir blint og sjónskert fólk hér á landi. Hóparnir munu hittast á miðvikudögum kl. 13.30 – 16.00 í húsnæði Miðstöðvarinnar, alls átta sinnum.

Halldór Sævar Guðbergsson, fagstjóri atvinnu- og virkni, og Steinunn Sævarsdóttir félagsráðgjafi halda utan um námskeiðið. Hámarksfjöldi þátttakenda er átta manns og er ekkert þátttökugjald. Skráning fer fram í afgreiðslu Miðstöðvarinnar og lýkur skráningu fyrir næsta námskeið föstudaginn 2. mars. Halldór og Steinunn veita nánari upplýsingar í síma 545 5800 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin halldor.gudbergsson@midstod.is og steinunn.saevarsdottir@midstod.is.