Óskað eftir fræðsluerindi

Miðstöðin býður upp á fræðsluerindi fyrir stofnanir, skóla, félagasamtök og aðra hópa, sé þess óskað. Þegar eru til fræðsluerindi um ýmis viðfangsefni, en jafnframt er brugðist við öðrum óskum eins og hægt er.

Sjónskerðing og skólaganga

Fræðsluerindi ætlað fyrir starfsmenn leik-, grunn- og framhaldsskóla um:

  • sjón og sjónskerðingar
  • aðgengi og lýsingu
  • leiðsögutækni
  • hjálpartæki
  • umgengni og viðhorf

Leiðsögutækni

Námskeið ætlað:

  • aðstandendum, fjölskyldu og vinum blindra og sjónskertra
  • starfsmönnum stofnana
  • heilbrigðisstarfsmönnum

Fræðsla fyrir starfsmenn stofnana um:

  • sjón og sjónskerðingu
  • aðgengi og lýsingu
  • leiðsögutækni
  • hjálpartæki
  • umgengni og viðhorf
  • samþætta aldurstengda sjón- og heyrnarskerðingu
  • samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og samskiptaleiðir

Fræðsluerindi um aðgengi blindra og sjónskertra

  • Fræðsluerindi í boði fyrir stofnanir, þjónustuaðila og hvers kyns hópa sem vilja kynna fræðslu um bætt aðgengi fyrir blinda og sjónskerta.

Panta má fræðsluerindi eða fræðslunámskeið með því að hringja í síma 545 5800 eða senda fyrirspurn á netfangið namskeid@midstod.is

 

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi