Endurgreiðslur
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblindra einstaklinga ber ábyrgð á endurgreiðslum til barna yngri en 18 ára.
Skilyrði fyrir endurgreiðslu er vottorð frá lækni eða sjóntækjafræðingi.
Ekki er greitt í gleraugnaumgjörðum.
Reglur um endurgreiðslur eru eftirfarandi:
- Börn frá 0 - 3 ára geta fengið greitt allt að tvisvar á ári
- Börn frá 4 - 8 ára einu sinni á ári
- Börn frá 9 - 17 ára annað hvert ár.
Upphæð endurgreiðslu miðast við styrk glerja. Ekki er greitt í glerjum < 0.75
- 0,75 - 4,0 3500 pr. gler
- 4.25 - 6.0 4000 pr. gler
- 6,25 - 8.0 5500 pr. gler
- 8,25 - 10,0 6300 pr. gler
- >10,0 7500 pr. gler
Umsókn og kvittun fyrir kaupunum þarf að senda til Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar, með upplýsingum um kennitölu foreldris og reikningsnúmer viðkomandi.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma Miðstöðvarinnar 545-5800
Umsókn um þátttöku ríkisins í kostnaði við gleraugu
(word) 54 kb