Framhaldsskóli

Þjónustan felst í fræðslu og ráðgjöf til nemandans, starfsfólks framhaldsskóla og annarra þjónustuaðila, aðstandenda og samnemenda. Eftir þörfum er unnið í nánu samstarfi við aðra sem sinna sérfræðiþjónustu við nemendur hverju sinni.

Ráðgjafar miðstöðvarinnar leggur í upphafi mat á stöðu nemandans m.t.t. aðgengis að námi og námsefni. Á grundvelli þessa mats er unnin þjónustuáætlun í samstarfi við nemandann og þá sem að þjónustunni koma. Innihald þjónustuáætlunarinnar fer eftir stöðu nemandans m.t.t. aðgengis að námsgögnum við hans hæfi.
Meðal þeirrar þjónustu sem miðstöðin veitir framhaldsskólanemendum er:

  • athugun og mat á sjónnýtingu nemandans
  • fræðsla á sjónskerðingu og sjónnýtingu til starfsfólks skólans og samnemenda í samráði við nemandann.
  • mat á hjálpatækjaþörf við nám
  • mat á leturstærð og leturgerð
  • útvegun og milliganga námsgagna á aðgengilegu formi
  • bein sértæk kennsla á sérstök hjálpartæki og-forrit í tölvum
  • fræðsla og aðstoð til nemandans til að styrkja og efla félagsfærni hans
  • aðstoð við nemandann við val á frekara námi
  • aðstoð við glósutækni í samvinnu við námsráðgjafa
  • fræðsla til starfsmanna skólans um uppsetningu aðgengilegra prófa

Í flestum tilfellum vinnur sérfræðingur miðstöðvarinnar náið með námsráðgjafa.

Leikskóli

Grunnskóli

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi