Aðgengi í umhverfinu
Til að blindir, sjónskertir og daufblindir einstaklingar geti lifað sjálfstæðu lífi og stundað fjölbreytta þátttöku í námi, starfi og leik er gott aðgengi mikilvægt. Aðgengi á þar við byggingar og önnur mannvirki, bæði úti og inni, en einnig aðgengi að upplýsingum á skrifuðu máli, á heimasíðum o.s.frv.
Einn liður í þjónustu miðstöðvarinnar er að leggja mat á aðgengi fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga og veita ráð um úrbætur. Aðgengisúttektir eru gerðar til að kanna hvernig bæta megi aðgengi í byggingum og við aðkomu að þeim, s.s. skólum, vinnustöðum og verslunum. Ráðleggingar varðandi hönnun á nýjum byggingum og svæðum eru einnig veittar.
Ýmis lög og reglugerðir hafa verið innleidd til að tryggja jafnt og öruggt aðgengi fyrir allt fólk í samfélaginu. Í lögum nr. 441 frá 1998 er til dæmis kveðið á um umferðarleiðir í byggingum. Þar segir í grein 199.1 að tryggja eigi "góðar og öruggar umferðarleiðir við hæðaskil og aðgang fyrir alla inn í og innan bygginga". Grein 199.2 kveður á um að "í þeim byggingum sem almenningur hefur aðgang að, skulu umferðarleiðir þannig gerðar að hreyfihamlaðir í hjólastól, sjónskertir og aðrir sem eiga erfitt með að rata geti notað þær". Til að tryggja að þessum lögum sé framfylgt getur verið nauðsynlegt að fá faglegt mat á aðgengi fyrir blinda og sjónskerta.