Aðgengi

Gott aðgengi vísar til þess að auðvelt sé fyrir alla að ferðast um jafnt innandyra sem utan. Þetta á til dæmis við um skýrar merkingar, góð litaskil og lýsingu. Aðgengi getur líka átt við upplýsingar á rafrænu formi.

Ýmis lög og reglugerðir hafa verið innleiddar til að tryggja jafnt og öruggt aðgengi fyrir allt fólk í samfélaginu. Í lögum nr. 441 frá 1998 er til dæmis kveðið á um umferðarleiðir í byggingum. Þar segir í grein 199.1 að tryggja eigi „góðar og öruggar umferðarleiðir við hæðaskil og aðgang fyrir alla inn í og innan bygginga”. Grein 199.2 kveður á um að í þeim byggingum sem almenningur hefur aðgang að skulu umferðarleiðir þannig gerðar að hreyfihamlaðir í hjólastól, sjónskertir og aðrir sem eiga erfitt með að rata geti notað þær.

Til að tryggja að lögum um aðgengi fyrir alla sé framfylgt getur verið nauðsynlegt að fá faglega aðstoð vegna aðgengis fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Slík fagleg ráð og úttektir má sækja til Miðstöðvarinnar. Aðgengisúttektir geta falist í að kanna hvernig bæta megi aðgengi í byggingum og við aðkomu að þeim, til dæmis skólum, vinnustöðum og verslunum. Ráðleggingar varðandi hönnun á nýjum byggingum og svæðum eru einnig veittar.

Sífellt algengara verður að upplýsingar og þjónustu þurfi að sækja á netið. Á síðu félagsmálaráðuneytis segir m.a. „Í stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið, Auðlindir í allra þágu, er að finna markmið um að rafræn þjónusta opinberra aðila taki mið af þörfum ólíkra hópa fatlaðra, s.s. blindra og sjónskertra. Gott aðgengi að rafrænni þjónustu hefur þannig sífellt meira vægi. Sérfræðingar Miðstöðvarinnar geta einnig veitt upplýsingar um leiðir til að uppfylla þarfir blindra, sjónskertra og daufblindra einstaklinga varðandi aðgengi að upplýsingum.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi