Hagnýt ráð
Hér er að finna ýmis hagnýt ráð varðandi aðgengi fyrir blinda og sjónskerta úr bókinni Aðgengi fyrir alla. Handbók um umhverfi og byggingar.
Leiðir til að bæta umhverfið
Leitast skal við að gera byggingar og umhverfi þeirra sýnileg sjónskertum, með því að leggja áherslu á eftirfarandi atriði:
- að gert sé ráð fyrir einföldu, rökréttu skipulagi, sem er gott að muna
- að notuð séu skörp litaskil (andstæðir litir og litbrigði)
- að notuð sé rétt lýsing, sem er viðeigandi og dreifist jafnt
- að gert sé ráð fyrir snertingu, hljóðum, ilmi og lofthreyfingu til að skynja umhverfið
- skýr, vel staðsett skilti