Aðgengilegt lesefni
Á Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga eru framleiddar og lánaðar út bækur á punktaletri og bækur á stækkuðu letri. Á punktaletri eru framleiddar bæði kennslubækur og afþreyingabækur en á stækkuðu letri eru aðallega framleiddar kennslubækur. Einnig á miðstöðin nokkuð safn þreifibóka fyrir börn. Þar að auki er boðið upp á bækur sem kallast „lesum saman“, en það eru barnabækur sem búið er að líma punktaletur inn í.
Allir sem lesa punktaletur geta fengið náms- og afþreyingarbækur. Þeir sem eru sjónskertir og þurfa stækkað letur geta fengið bækur eftir að mat á letursstærð hefur farið fram.
Beiðni um bækur fer fram hjá ráðgjöfum. Beiðnir þurfa að berast með góðum fyrirvara.