Bækur með stækkuðu letri

Á Þjónustu- og þekkingarmiðstöð er framleitt náms- og afþreyingarefni á stækkuðu letri. Ráðgjafi metur þörf einstaklings á leturstærð og leturgerð. Oftast er Tahoma-leturgerðin notuð og 14 - 38 punkta leturstærð.

Flestar bækurnar eru með 1½ línubil. Bækurnar eru gerðar aðgengilegri fyrir notendur, til dæmis eru myndir stækkaðar, rammar fjarlægðir o.s.frv. Ekki er notuð skáletrun né undirstrikun.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi