Lesum saman
Á Þjónustu- og þekkingarmiðstöð er boðið upp á að setja punktaletur í venjulegar smábarnabækur. Þá er punktaletrið skrifað á glært plast sem er límt inn á viðeigandi blaðsíður í bókinni. Þannig gefst blindum foreldrum og börnum þeirra tækifæri til að lesa og skoða bækurnar saman.
Einnig eru þessar bækur ætlaðar fyrir ung, blind börn sem eru að byrja að skoða bækur sér til ánægju en er jafnframt góður undirbúningur fyrir lestur á punktaletri.