Athafnir daglegs lífs

Markmið kennslu í athöfnum daglegs lífs er að auka sjálfstæði og færni notanda.

Í samvinnu við sérfræðinga Miðstöðvarinnar er fundin lausn á vandamálum tengdum sjónskerðingu. Lausnin getur falist í að nota sérstök hjálpartæki og læra tækni við að gera hlutina á nýjan hátt.

Aðstoðin getur falist í því að finna aðferðir sem auðvelda dagleg verk og finna hjálpartæki við hæfi sé þess þörf. Þessi daglegu verk geta verið: Lesa meira um mat og matreiðslu

  • matargerð
  • borðhald
  • þvottur
  • þrif
  • persónuleg umhirða
  • skipulag
  • innkaup
  • skrift og lestur

Einnig eru veittar ráðleggingar um lýsingu og litaskil ásamt vali á tækjum.

Til þess að árangur náist þarf viðkomandi að vinna með sérfræðingunum í að nota hjálpartækin rétt og beita vinnubrögðum sem kennd eru.  

Lesa meira um litaskil og andstæður

Lesa meira um mat og matreiðslu

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi