Litaskil og andstæður
Sjáðu nú til
Nýttu þér margs konar liti, áferð og andstæður og gerðu heimilisstörfin auðveldari viðfangs og tómstundirnar ánægjulegri. Hér eru nokkur dæmi um slíkt.
Matreiðsla
Það er um að gera að nota mismundandi lit áhöld við matargerðina
Betra er að nota ljós áhöld á dökku borði og dökk á ljósu borði
Máltíðin
Auðveldara er að sjá diskinn ef hann er í öðrum lit en dúkurinn/borðið
Liturinn á matnum miðað við diskinn skiptir líka máli
Lituð glös sjást betur en glær
Umhverfið
Hurðir þurfa að skera sig úr veggnum, hurðir eða dyrakarmar geta verið í öðrum lit en veggurinn
Húnar og handföng geta verið í öðrum lit en hurðir
Mottur á gólfi ættu að vera í litum sem skera sig frá gólfinu
Skörp skil milli stólsetu og gólfs gera stólana sýnilegri
Annar litur á tröppunefi gerir hverja tröppu sýnilegri
Auðveldara er að finna koddann ef koddaverið er í öðrum lit en sængurverið
Handavinna
Gott er að nota mislita prjóna og heklunálar. Dökkt með ljósu garni og ljóst með dökku garni
Tölvan
Hægt er að gera lyklaborðið sýnilegra
Síminn og klukkurnar
Til eru símar með stórum, greinilegum tökkum og klukkur með stórum greinilegum stöfum, í mismunandi litum með mismunandi bakgrunn