Börn 6 - 18 ára

Þjónustan er sniðin að þörfum barns og fjölskyldu og tekur m.a. mið af aldri og sjónskerðingu. Lögð er áhersla á ráðgjöf, stuðning og samstarf við foreldra barnsins enda gegna þeir lykilhlutverki í umönnun og uppeldi. 

Ráðgjöfin felst í beinni íhlutun með barninu, samstarfi við foreldra og aðra sem að þjónustu við barnið og fjölskylduna koma.

Í þjónustunni felst meðal annars:

  • fræðsla og stuðningur um sjónskerðingu og nýtingu sjónar
  • ráðleggingar um aðferðir við ADL- og umferli
  • aðstoð til nemenda og foreldra við útfærslu heimanáms
  • stuðningur við samstarf við aðra þjónustuaðila, svo sem starfsfólk skóla
  • virkni og samskipti við önnur börn
  • aðstoð við pantanir á stækkuðu letri eða punktaletri til yndislesturs
  • aðstoð við aðlögun á tómstundum
  • mat á þörf fyrir lýsingu
  • ráðgjöf um gagnleg hjálpartæki
  • upplýsingar um þjónustu sem er í boði hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöðinni
  • undirbúningur fyrir næsta skólastig
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi