Félagsráðgjöf

Veitt er ráðgjöf og stuðningur í  félags- og réttindamálum. Veittar eru upplýsingar um félagsleg réttindi og úrræði og aðstoð við að sækja þau samkvæmt óskum notanda. Metin er félagsleg staða, með tilliti til úrræða á sviði félagsþjónustu og samfélagslegs stuðnings. Veittar eru upplýsingar um þjónusturéttindi innan miðstöðvarinnar sem utan. Einstaklingar eru aðstoðaðir við faglega úrlausn mála og réttindagæslu innan almannatryggingakerfis, til dæmis er varðar trygginga- og lífeyrismál, og við að tryggja að málsmeðferð einstakra mála sé í samræmi við lög og reglugerðir sem við eiga hverju sinni.

Félagsráðgjöf til foreldra ungra barna felst í ráðgjöf og stuðningi sem og réttindagæslu hvað varðar framlengingu á fæðingarorlofi, umönnunarbætur og foreldragreiðslur. Lögð er áhersla á stuðning og eftirfylgd.

Miðstöðin er í samstarfi við aðrar stofnanir og fagaðila sem bera ábyrgð á sviði félagsþjónustu og réttindamála.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi