Réttindamál

BÖRNUM SKAL TRYGGÐ MEÐ LÖGUM SÚ VERND OG UMÖNNUN SEM VELFERÐ ÞEIRRA KREFST
3. mgr.  76. grein stjórnarskrárinnar

Ýmislegt um réttindamál langveikra eða alvarlega fatlaðra barna

Hjá umboðsmanni barna hafa verið unnar upplýsingar úr ýmsum lögum sem sett hafa verið á Alþingi og varða börn og unglinga.  Efni helstu lagaákvæða, sem varða börn og unglinga hér á landi er birt í Litlu lögbókinni (lögbók barnanna) og í Lögum unga fólksins.

Ítarlegar upplýsingar um réttindin barna eru að finna á heimasíðu umboðsmanns barna

Fjölskylduvefur félagsmálaráðuneytisins er upplýsingavefur og samskiptatorg um réttindi og hlutverk fjölskyldna í íslensku samfélagi.

Velferðarþjónusta til foreldra og barna getur verið fjölbreytt og er veitt af mörgum aðilum. Allar helstu upplýsingar er að finna á vefsíðu Tryggingastofnunar ríkisins, en TR er í þéttu samstarfi við ýmsa aðila er veitt geta upplýsingar og þjónustu. Þegar foreldrar og börn fara til lækna og félagsráðgjafa er oft hægt að fá góðar upplýsingar um tiltekna þjónustuhætti.  Enn fremur eru til hagsmunafélög eða almennar þjónustuskrifstofur sem geta veitt upplýsingar. Vakin er athygli á, að sækja þarf um allar greiðslur og umsóknum þurfa að fylgja læknisvottorð og önnur umbeðin gögn.

Fjárhagslegur stuðningur skv. kjarasamningum, sjúkrasjóðir o.fl.

Flestir launþegar eiga skv. kjarasamningum rétt á 12 virkum dögum að hámarki á ári til að sinna börnum sínum undir 13 ára aldri vegna veikinda þeirra. Sjúkrasjóðir eru almennt ekki hugsaðir fyrir foreldra til að sinna sjúkum börnum sínum en þó eru til undantekningar og hefur þeim farið fjölgandi á síðustu misserum

Greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna

Foreldragreiðslur eru  ætlaðar til mótvægis við tekjutap foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. Um sameiginlegan rétt foreldra er að ræða.

Lögin varðandi þennan nýja bótaflokk hjá Tryggingastofnun tóku gildi 1. janúar 2008 og greiðslur komu til framkvæmda 15. mars 2008.

Foreldrar barna sem greinast eftir 1. október 2007 með sjúkdóms- eða fötlunarstig 1, 2 eða 3 skv. 26. og 27. grein laga nr. 22/2006 með síðari breytingum, geta átt rétt á tekjutengdum greiðslum.

Foreldrar barna sem greinast með 1. eða 2. sjúkdóms- eða fötlunarstig skv. 26. og 27. grein laganna geta átt rétt á almenni fjárhagsaðstoð (grunngreiðslu) frá 1. janúar 2008 óháð því hvenær börn þeirra greindust.

Greinist barn aftur, eftir 1. okt. 2007, með alvarlegan eða langvinnan sjúkdóm eftir að hafa náð bata geta foreldrar átt rétt á greiðslum.

Umönnunargreiðslur fara með foreldragreiðslum

Við mat á lengd greiðslutímabils skal framkvæmdaraðili líta heildstætt á aðstæður fjölskyldunnar.

Foreldrar geta átt rétt á eftirfarandi greiðslum og hlunnindum:

  • Umönnunargreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins.
  • Styrkur til bifreiðakaupa til framfæranada barna sem njóta umönnunargreiðslna.
  • Niðurfelling bifreiðaskatts.
  • Ferðakostnaður greiðist samkvæmt reglum um ferðakostnað.
  • Læknishjálp: lægra gjald vegna framvísun afsláttarskírteinis.
  • Lækkun og tekju- og eignaskatti. Hægt er að sækja um lækkun á tekju- og eignaskatti hjá skattstjóra og áfrýja úrskurði hans til ríkisskattstjóra.
     
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi