Fæðingarorlof
- Fæðingarorlof og dvöl barns á sjúkrahúsi. Þurfi barn að dveljast á sjúkrahúsi lengur en sjö daga í beinu framhaldi af fæðingu er heimilt að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eða fæðingarstyrks um þann dagafjölda sem barn dvelur á sjúkrahúsi fyrir fyrstu heimkomu, allt að fjóra mánuði. Með umsókn skal fylgja læknisvottorð.
- Fæðingarorlof og alvarleg veikindi barns. Jafnframt er heimilt að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eða fæðingarstyrks í allt að þrjá mánuði ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns sem krefst nánari umönnunar foreldris. Með umsókn skal fylgja læknisvottorð.
Heimasíða Fæðingarorlofssjóðs