Félagsleg hagnýt úrræði
Hreyfihömlun: Sótt er um P-merki í bíla fyrir hreyfihamlað fólk hjá sýslumanninum í Kópavogi Dalvegi 18. Sími 560 3000 http://www.syslumenn.is/ Læknisvottorð þarf að fylgja og mynd.
Umsókn um ferðaþjónustu fatlaðra skal senda til þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar í því hverfi sem umsækjandi býr. Umsókn er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á Rafrænu Reykjavík http://www.rvk.is/. Læknisvottorð þarf að fylgja umsókninni.
Svæðisskrifstofur fatlaðra: Námsstyrkir, styrkir til verkfæra- og tækjakaupa.
Öryrkjabandalag Íslands, (bandalag 33 aðildarfélaga) Sími 530 6700, Hátúni 10, http://www.obi.is veitir félagsráðgjöf og lögfræðiráðgjöf fólki að kostnaðarlausu, eingöngu er um ráðgjöf að ræða og panta þarf tíma fyrirfram.
Brynja hússjóður Öryrkjabandalagsins, s. 570 7800, Hátúni 10d, www.brynjahus.is er sjálfseignarstofnun. Hlutverk sjóðsins er að eiga og reka íbúðir fyrir öryrkja.
Hringsjá náms- og starfsendurhæfing, s. 510 9380, www.hringsja.is, Hátúni 10c, www.hringsja.is Náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla.
TMF tölvumiðstöð, s. 562 9494, Háaleitisbraut 13, 108 Reykavík, www.tmf.is Ráðgjöf, námskeið og upplýsingamiðlun sem felur í sér mat á þörf fyrir sértækan tölvubúnað, val á búnaði, prófun og leiðsögn í notkun búnaðar sem gagnast tilteknum hópum og kennsla á búnað.
Mentor-verkefnið vinátta, Krókhálsi 5d, sími 551 9873. Mentor-verkefnið er samvinnuverkefni milli Háskóla Íslands og þeirra grunnskóla sem taka þátt í verkefninu. Mentor-verkefnið gengur út á að háskólanemi gerist vinur barns og gerir eitthvað með barninu 2-4 tíma á viku. Er hugsað sem stuðningur við börn sem eru félagslega einangruð. Að launum fær háskólaneminn peningagreiðslu eða einingar í náminu.
Táknmálstúlkun: Fyrir heyrnaskerta er á vegum Samskiptamiðstöðvar heyrnalausra og heyrnaskertra www.shh.is