Sálfélagslegur stuðningur fyrir börn og fullorðna
Hjá Fjölskyldumiðstöðinni Háaleitisbraut 13, er boðið upp á fjölskyldumeðferð sem er fólki að kostnaðarlausu. Þjónustan er hugsuð sem almenn og fyrirbyggjandi þjónusta fyrir fjölskyldur og tekur Erla Þórðardóttir félagsráðgjafi við viðtalspöntunum í síma 511 1599. Vefsíða Fjölskyldumiðstöðvarinnar er www.barnivanda.is.
Hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, Klapparstíg 25, sími 562 3600 er starfandi sálfræðingur og þrír félagsráðgjafar sem bjóða upp á hjóna- og fjölskyldumeðferð. Símatími er á morgnana kl. 8:30 – 9:00.
Hægt er að sækja um styrk til velferðarsviðs Reykjavíkur eða velferðarsviðs sveitafélaga um að fá greidd 10 viðtöl hjá sálfræðingi.
Sjúkrasjóðir flestra stéttarfélaga greiða fyrir ákveðinn fjölda viðtala hjá sálfræðingi