Sjúkratryggingar Íslands

Sjúkratryggingar Íslands heyra undir heilbrigðisráðuneyti og annast framkvæmd sjúkratrygginga. Jafnframt semur stofnunin um og greiðir fyrir heilbrigðisþjónustu.

Sjúkratryggingar Íslands og Tryggingastofnun ríkisins reka sameiginlega afgreiðslu, þjónustu og upplýsingagjöf við viðskiptavini sína. Ávallt er leitast við að veita eins skjóta og góða þjónustu og mögulegt er.

Starfsfólk Sjúkratrygginga Íslands tekur jafnframt saman fróðleik og tölulegar upplýsingar um sjúkratryggingar á Íslandi.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi