Tannlækningar fyrir 17 ára og yngri
Börn og ungmenni
Forvarnarskoðun barna 3ja, 6 og 12 ára barna
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samning við fjölda tannlækna um forvarnarskoðanir þriggja, sex og tólf ára barna. Skoðunin er greidd ef hún fer fram meðan börn eru á þessum aldri.
Samkvæmt samningum senda tannlæknar reikninga fyrir forvarnarskoðanir beint til Sjúkratrygginga Íslands án milligöngu sjúklings. SÍ greiðir fyrir skoðunina að fullu.
Tannlækningar fyrir 17 ára og yngri
Sjúkratryggingar Íslands greiða 75% kostnaðar fyrir börn og unglinga 17 ára og yngri.
Tannlæknar ákveða sjálfir verð á meðferð á sinni stofu. Heilbrigðisráðuneyti gefur út eigin gjaldskrá sem Sjúkratryggingar Íslands miða sínar endurgreiðslur við. Ef gjaldskrá tannlæknis er hærri en gjaldskrá ráðuneytis greiðir einstaklingur mismuninn þar á milli.
Sjúkratryggingum Íslands er ekki heimilt að taka þátt í kostnaði við ýmsar meðferðir svo sem flúorlökkun barna og unglinga oftar en einu sinni á hverju almanaksári.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands.