Skólamál
Leikskólar
Í lögum um leikskóla nr. 90/2008 segir m.a. í 22. grein:
Börn sem þurfa sérstaka aðstoð og þjálfun, að mati viðurkenndra greiningaraðila, eiga rétt á slíkri þjónustu innan leikskólans. Þjónusta þessi skal fara fram undir handleiðslu sérfræðinga samkvæmt ákvörðun leikskólastjóra og sérfræðiþjónustu skv. 21. gr. í samráði við foreldra.
Hægt er að sækja um forgang í leikskóla fyrir blind og sjónskert börn. Læknisvottorð þarf að fylgja umsókninni. Barninu er fylgt þétt eftir með stuðningi og ráðgjöf bæði við foreldrana sem og inn í leikskólann Hægt er að fá aðgengisúttekt bæði innan skólans sem utan til að gera umhverfið sem aðgengilegast fyrir barnið. Einnig lánar Miðstöðin leikföng sem stuðla að þroska sjónar og til almennar örvunar.
Grunnskólar
Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 segir m.a. í 17. grein:
Nemendur eiga rétt á að komið sé til móts við námsþarfir þeirra í almennum grunnskóla án aðgreiningar, án tillits til líkamlegs eða andlegs atgervis Nemendur sem eiga erfitt með nám sökum sértækra námsörðugleika, tilfinningalegra eða félagslegra örðugleika og/eða fötlunar, sbr. 2. gr. laga um málefni fatlaðra, nemendur með leshömlun, langveikir nemendur og aðrir nemendur með heilsutengdar sérþarfir eiga rétt á sérstökum stuðningi í námi í samræmi við metnar sérþarfir.
Nemendur sem að mati læknis geta ekki sótt skóla vegna slyss eða langvarandi veikinda eiga rétt til sjúkrakennslu annaðhvort á heimili sínu eða á sjúkrastofnun. Sjúkrakennsla er á ábyrgð viðkomandi sveitarfélags.
Framhaldsskólar
Í lögum um framhaldsskóla er ekki tekið sérstaklega á málefnum er snúa að langveikum börnum eða einstaklingum sem glíma við síðbúnar afleiðingar vegna langvinnra veikinda. Þó er bent sérstaklega á 34. grein í lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 þar sem fjallað er um nemendur með sérþarfir:
Á framhaldsskólastigi skal veita nemendum með fötlun, sbr. 2. gr. laga nr. 59/1992, um málefni fatlaðra, og nemendum með tilfinningalega eða félagslega örðugleika kennslu og sérstakan stuðning í námi. Látin skal í té sérfræðileg aðstoð og viðeigandi aðbúnaður eftir því sem þörf krefur. Nemendur með fötlun skulu stunda nám við hlið annarra nemenda eftir því sem kostur er.
Ráðherra getur í samningi við framhaldsskóla heimilað rekstur sérstakra námsbrauta við framhaldsskóla fyrir nemendur með fötlun.
Nemendur með leshömlun skulu eiga aðgang að sérsniðnum námsgögnum eftir því sem við verður komið. Framhaldsskóli gerir grein fyrir því í skólanámskrá hvernig staðið er að skimun og greiningu leshömlunar, ásamt eftirfylgni og stuðningi við nemendur sem greindir eru með leshömlun.
Framhaldsskólar skulu leitast við að veita þeim nemendum sérstakan stuðning sem eiga við sértæka námsörðugleika að stríða eða veikindi.