Umönnunargreiðslur
Umönnunargreiðslur er fjárhagsleg aðstoð til foreldra sem eiga börn sem glíma við fötlun eða alvarleg veikindi. Þetta er félagsleg aðstoð sem veitt er þegar umönnun er krefjandi og kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu, meðferðar og þjálfunar er orðinn umtalsverður yrir foreldra.
Umönnunargreiðslur geta verið til 16/18 ára aldurs. Sótt er um aðstoðina til TR með því að leggja fram umsókn ásamt læknisvottorði, staðfestingu á útlögðum kostnaði og eftir atvikum greinargerð frá félagsráðgjafa.
Ef veikindi barns eru alvarleg og standa lengur en þrjá mánuði er unnt að sækja um umönnunargreiðslur.
Umönnunargreiðslur eru mánaðarlegar skattlausar greiðslur til foreldra. Umönnunargreiðslar fara saman með greiðslum úr fæðingarorlofssjóði.
Sjá nánar á heimasíðu TR