Umönnunarkort
Þeir sem fá umönnunargreiðslur eiga rétt á umönnunarkorti.
Kortið veitir foreldrum afslátt vegna kaupa á lyfjum fyrir börn. Þegar börn nota ákveðin lyf að staðaldri eða þegar umtalsverð fjárútlát eru vegna lyfja er umhugsunarvert fyrir foreldra að skoða rétt sinn til umönnunarkorts. Það er gert með því að ræða við heilbrigðisstarfsmenn og leggja inn umsókn til Tryggingastofnunar. Foreldrar þurfa einnig að sjá til þess að læknisvottorð berist til TR þegar sótt er um þessa aðstoð.
Einnig þau börn sem eiga við minni vandamál að stríða og eiga ekki rétt á umönnunargreiðslum gætu átt rétt á umönnunarkorti til lækkunar á læknis- og lyfjakostnaði.
Gegn framvísun umönnunarkorts greiða framfærendur sama gjald fyrir lyf og elli- og örorkulífeyrisþegar.
Umönnunarkort lækkar einnig kostnað vegna læknisvitjana og sérfræðilæknisþjónustu.
Gildistími umönnunarkortsins er frá fæðingu ef um meðfæddan sjúkdóm eða fötlun er að ræða. Að öðrum kosti er miðað við greiningu og nær gildistíminn allt að 18 ára aldri.
Heimilt er að lengja gildistíma til allt að 20 ára aldurs vegna barna í foreldrahúsum með alvarlega og langvarandi sjúkdóma eða alvarlega fjölfötlun.
Heimasíða Tryggingastofnunar ríkisins