Frístundirnar

Hugtökin sjálfsefling, virkni og þátttaka eru höfð að leiðarljósi í þjónustu Miðstöðvarinnar. Starfsmenn hennar keppast við veita stuðning og ráðleggingar til fólks sem sækist eftir því að stunda iðju sína og áhugamál. Frístundir fólks eru margvíslegar og fjölbreyttar, allt frá rólegum bókalestri að krefjandi  íþróttum og útivist. Hvort sem einstaklingurinn vill tileinka sér ný áhugamál eða halda áfram fyrri iðkun er leitast við að aðstoða fólk við að yfirstíga hindranir sem verða á vegi þess. 

Stuðningur við frístundir er fyrst og fremst fólginn í því að auðvelda aðgengi. Til þess er ýmist notast við skipulag umhverfis, ráðgjöf og þjálfun í umferli og athöfnum daglegs lífs og notkun hjálpartækja. Til dæmis er hægt að nálgast lesefni og krossgátur með bættri lýsingu, stækkunarglerjum, sjóntækjum eða sértækum stækkunarbúnaði. Fyrir þá sem ekki geta nýtt sjónina til lesturs er möguleiki á því að annast milligöngu um hljóðbækur eða punktaletursbækur á því efni sem óskað er eftir. Hægt er að aðstoða fólk við að nálgast upplýsingar í gegnum tölvur og internetið með sértækum tölvu- og hugbúnaði og þjálfun í notkun hans.

Umferlisþjálfun kann sömuleiðis að vera mikilvægur þáttur í því að gera tómstundariðkun aðgengilega. Ráðgjafar miðstöðvarinnar veita til dæmis umferlisþjálfun á gönguleiðum, líkamsræktarstöðvum, í verslunum og í opinberum byggingum í heimabyggð þjónustunotenda.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi