Gerviaugu
Á Miðstöðinni fer fram smíði og úthlutun gerviaugna. Stefán Baldursson, augnsmiður, sér um smíði gerviaugna og hægt er að panta tíma hjá honum á þjónustuborði Miðstöðvarinnar í síma 5455800. Gerviaugum er úthlutað samkvæmt þörfum notenda og mati Miðstöðvarinnar. Meðfylgjandi er heimasíða Stefáns en þar er að finna margvíslegar upplýsingar um gerviaugu og meðferð þeirra. Einnig er hægt að fá upplýsingar á Miðstöðinni með því að senda tölvupóst á netfangið midstod@midstod.is