Erlendar hjálpartækjasíður
Hér má finna vefslóðir þar sem nálgast má margvíslegar upplýsingar um hjálpartæki
Hvað er Eastin?
Eastin veitir aðgang að upplýsingum um hjálpartæki frá fjórum evrópskum hjálpartækjabönkum. Þetta gerir notendum kleift að leita í gagnsöfnum Rehadat í Þýskalandi, Siva á Ítalíu, Hjelpemiddelinstituttet í Danmörku og hjá Disabled Living Foundation á Bretlandi. Með Eastin-vefsíðunni er unnt að finna svör við spurningum á borð við:
- hvaða hjálpartæki er unnt að nálgast á evrópskum markaði?
- hvaða eiginleika hafa þessi tæki og hvernig líta þau út?
- hver framleiðir tækin og hvar er hægt að nálgast þau?
- hver er reynsla notenda af tækjunum?
- hvaða atriði ber að hafa í huga við val á hjálpartækjum?
Öll flokkun er samkvæmt ISO 999:2007 staðli.