Ferli umsókna

Hvernig sækir þú um hjálpartæki?

Við komu eða heimsókn starfsmanna Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fer fram mat á þörfum notenda þjónustunnar.  Einn hluti þessa mats er greining á þörfum fyrir hjálpartæki. Notandi og tengiliður sækja þá í sameiningu eftir úthlutun hjálpartækja og fylgir tengiliður umsókninni eftir, afhendir tækið og kennir á það.

Við breytingar á sjón eða aðstæðum hjá notenda getur þörf fyrir hjálpartæki einnig breyst. Tengiliður aðstoðar við val á tækum við þær aðstæður.

Notandi getur sótt um tæki á netinu. Umsóknin berst tengiliðs viðkomandi. Tengiliður hefur samband við notanda og gerir færnisgreiningu með viðkomandi og saman ganga þeir frá endanlegri umsókn um tækið eigi viðkomandi rétt á tilteknu tæki samkvæmt reglugerð stofnunar.

Hjálpartækjalisti Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar er stöðugt í endurskoðun og er formlega endurnýjaður einu sinni á ári. Unnt er að sækja um tæki sem ekki eru á listanum og fer slík umsókn til skoðunar, umsagnar og afgreiðslu hjá hjálpartækjanefnd.

Hvar fæ ég hjálpartæki afhent?

Í mörgum tilfellum er hjálpartæki úthlutað í viðtali við starfsmenn stofnunar. Þar ber að telja stækkunargler. Aðra hluti þarf að panta  eða útbúa og getur þá afhendingartími orðið allt að fjórar vikur. Það er stefna okkar að afhenda hjálpartæki eins fljótt og auðið er.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi