Námið
Þjónusta fyrir fólk í námi felst í því að sérfræðingur Miðstöðvarinnar leggur í upphafi mat á stöðu nemandans m.t.t. aðgengis að námi og námsefni. Á grundvelli þessa mats er unnin þjónustuáætlun í samstarfi við nemandann og þá sem að þjónustunni koma. Meðal þeirrar þjónustu sem miðstöðin veitir nemendum er:
- athugun og mat á sjónnýtingu
- fræðsla á sjónskerðingu og sjónnýtingu til starfsfólks skólans og samnemenda í samráði við nemandann sjálfan.
- mat á hjálpatækjaþörf
- kennsla á hjálpartæki og -forrit í tölvum
- mat á hentugri leturstærð og leturgerð
- útvegun og milliganga námsgagna á aðgengilegu formi
- fræðsla og aðstoð til nemandans til að styrkja og efla félagsfærni
- aðstoð við glósutækni í samvinnu við námsráðgjafa
- fræðsla til starfsmanna skólans
Í flestum tilfellum vinnur sérfræðingur Miðstöðvarinnar náið með námsráðgjafa skólans.