Námskeið

Miðstöðin skipuleggur árlega fjölda námskeiða fyrir börn, ungmenni og fullorðna sem eru blindir, sjónskertir og daufblindir, og fyrir aðstandendur og fagfólk sem vinnur með eða í umhverfi þeirra. Leitast er við að hafa námskeiðin sem fjölbreyttust til að mæta þörfum sem flestra notenda, aðstandenda og þjónustuaðila. Einnig er lögð mikil áhersla á að námskeið sé vettvangur fyrir fólk til að hittast og deila hugmyndum og ræða saman á grundvelli þarfa hópsins.

Miðstöðin býður einnig upp á fræðslu, fyrirlestra og námskeið fyrir stofnanir, skóla, félagasamtök og aðra hópa, sé þess óskað. Slíkir viðburðir eru þá skipulagðir að þörfum viðkomandi hóps. Þegar eru til fræðsluerindi um ýmis viðfangsefni, en jafnframt er brugðist við öðrum óskum eins og hægt er. Nánari upplýsingar um þau fræðsluerindi sem eru í boði er að finna undir flipanum fróðleikur/fræðsluerindi á heimasíðu Miðstöðvarinnar.

Námskeiðsáætlun tímabilsins frá september til desember 2010 er nú tilbúin. Eftirfarandi námskeið verða í boði:

 

Námskeiðaáætlun
NámskeiðFyrirHvenærSkráning
BarnanámskeiðBörn á aldrinum 6-12 ára12.6.2012-15.6.2012 Skrá mig á Barnanámskeið
Námskeið fyrir kennara og stuðningsfulltrúa blindra og sjónskertra nemendakennara og stuðningsfulltrúa blindra og sjónskertra nemenda17.2.2012-18.2.2012 Skráningu lokið
Námskeið í minnistækniSjónskerta og blinda einstaklinga, 16-60 ára, sem vilja bæta minnið sitt27.1.2012-28.1.2012 Skráningu lokið
Félagshæfni Alla áhugasama2.12.2011-2.12.2011 Skráningu lokið
Jólabingó 2011Börn og ungmenni sem nota punktaletur og stækkað letur1.12.2011-1.12.2011 Skráningu lokið
Kynning á punktaletursnótumTónlistarkennara14.9.2011-14.9.2011 Skráningu lokið
Út að gangaBlinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga14.9.2011-23.9.2011 Skráningu lokið
Punktaletur Kennara 22.8.2011-5.9.2011 Skráningu lokið
Nótur á punktaletriBlindir og sjónskertir tónlistarnemendur og aðrir áhugasamir17.8.2011-18.8.2011 Skráningu lokið
Aðgengi og útfærsla á náms- og kennsluefniNámskeiðið er ætlað fyrir starfsfólk, leik,- grunn,- og framhaldsskóla sem starfa með blindum og sjónskertum nemendum. 16.8.2011-16.8.2011 Skráningu lokið
Grunnkennsla í ADL og umferliNámskeiðið er ætlað fyrir starfsfólk, leik,- grunn,- og framhaldsskóla sem starfa með blindum og sjónskertum nemendum. 16.8.2011-16.8.2011 Skráningu lokið
Vinnusmiðja - kynning á þreifibókagerðFyrir starfsfólk skóla og annarra stofnana sem koma að þjónustu og kennslu blindra og daufblindra einstaklinga.16.8.2011-16.8.2011 Skráningu lokið
Hreyfiþroski blindra og sjónskertra barna - Tækifæri til íþróttaiðkunarForeldra 0 - 18 ára barna7.12.2010-7.12.2010 Skráningu lokið
Jólabingó fyrir nemendur sem nota punktaletur og stækkað letur.Nemendur sem nota punktaletur eða stækkað letur.2.12.2010-2.12.2010 Skráningu lokið
Fyrirlestraröð haustið 2010 Systkini fatlaðra barnaForeldrar og aðstandendur blindra og sjónskertra einstaklinga10.11.2010-10.11.2010 Skráningu lokið
Punktaletur fyrir kennara - framhaldsnámskeiðKennara - framhaldsnámskeið 2.11.2010-23.11.2010 Skráningu lokið
Punktaletur fyrir notendur byrjendanámskeið Notendur punktaleturs19.10.2010-4.11.2010 Skráningu lokið
Markbolti Notendur á aldrinum 15 - 40 ára18.10.2010-15.11.2010 Skráningu lokið
Fyrirlestraröð haustið 2010 Leiðsögutækni og umferli fyrir aðstandendur og vini blindra og sjónskertraAðstandendur og vini blindra og sjónskertra einstaklinga12.10.2010-12.10.2010 Skráningu lokið
Myndlist og textíl fyrir kennara blindra og sjónskertra nemendaMyndlista - og textíl kennara8.10.2010-8.10.2010 Skráningu lokið
Fuglar í nágrenni okkarNemendur á aldrinum 6 - 12 ára21.9.2010-21.9.2010 Skráningu lokið
Punktaletur fyrir aðstandendur - ByrjendanámskeiðAðstandendur nemenda sem nota punktaletur20.9.2010-4.10.2010 Skráningu lokið
Aðgengi og aðlögun á námsefni fyrir blinda og sjónskertaKennarar og starfsfólk grunnskóla16.9.2010-30.9.2010 Skráningu lokið
Stærðfræðinámskeið fyrir kennara og aðstandendurKennara og aðstandendur14.9.2010-21.9.2010 Skráningu lokið
Punktaletur fyrir kennara - byrjendanámskeiðKennarar þeirra sem nota punktaletur.9.9.2010-30.9.2010 Skráningu lokið
"Hagnýt ráð og handavinna" Nýtt námskeiðÁhugasama um handavinnu9.9.2010-9.12.2010 Skráningu lokið
Hagnýt ráð og handavinnaÁhugsamir um handavinnu9.9.2010-9.12.2010 Skráningu lokið
Fyrirlestraröð haustið 2010 Líffræði augansAðstandendur sjónskertra barna og ungmenna7.9.2010-14.9.2010 Skráningu lokið
Út að ganga25 ára og eldri3.9.2010-27.10.2010 Skráningu lokið

Miðstöðin áskilur sér rétt til að uppfæra námskeið og innihald og einnig að aflýsa námskeiði náist ekki næg þátttaka.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana eru jafnframt hvattir til að leita sér styrkja hjá sínu stéttarfélagi til að mæta kostnaði af þátttöku á námsskeiðum á vegum Miðstöðvarinnar.


 

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi