Námskeið

Miðstöðin skipuleggur árlega fjölda námskeiða fyrir börn, ungmenni og fullorðna sem eru blindir, sjónskertir og daufblindir, og fyrir aðstandendur og fagfólk sem vinnur með eða í umhverfi þeirra. Leitast er við að hafa námskeiðin sem fjölbreyttust til að mæta þörfum sem flestra notenda, aðstandenda og þjónustuaðila. Einnig er lögð mikil áhersla á að námskeið sé vettvangur fyrir fólk til að hittast og deila hugmyndum og ræða saman á grundvelli þarfa hópsins.

Námskeiðsáætlun Miðstöðvarinnar inniheldur upplýsingar um öll námskeið sem verða í boði á árinu 2010.

Miðstöðin býður einnig upp á fræðslu, fyrirlestra og námskeið fyrir stofnanir, skóla, félagasamtök og aðra hópa, sé þess óskað. Slíkir viðburðir eru þá skipulagðir að þörfum viðkomandi hóps. Þegar eru til fræðsluerindi um ýmis viðfangsefni, en jafnframt er brugðist við öðrum óskum eins og hægt er.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi