Sjóntækjaþjónusta
Þjónusta Miðstöðvarinnar felst í mati á þörf fyrir sjónhjálpartæki. Sjónhjálpartæki eru notuð þegar bestu venjulegu gleraugu eða snertilinsur hjálpa ekki lengur ein og sér. Þau hafa flest öll það hlutverk að stækka með einum eða öðrum hætti það sem horft er á og framkalla þannig betri mynd.
Dæmi um sjónhjálpartæki eru t.d. sterk lesgleraugu, stækkunargler til lestrar og nærvinnu, sjónaukar og kíkisgleraugu til að horfa lengra frá sér. Einnig er um að ræða gleraugu og linsur fyrir börn sem búið er að fjarlægja augasteina úr. Þessi sjónhjálpartæki er bæði hægt að nota ein og sér eða saman, allt eftir því hvernig sjóninni er háttað. Þá eru prófuð sérstök lituð gleraugu til ljóssíunar fyrir þá sem eru birtufælnir en hafa ekki gagn af venjulegum sólgleraugum.
Sjónfræðingar Miðstöðvarinnar aðstoða við mælingar og útvegun sjónhjálpartækja.