Skipulag umhverfis

Til að auðvelda blindum og sjónskertum að rata utandyra skal skipuleggja gönguleið með leiðarmerkingum. Auðveldara er að rata ef gönguleiðir mynda rétt horn hver á aðra. Á torgum og í anddyrum getur leiðarmerking á stétt og á gólfi gefið til kynna hvert gönguleið liggur. Kennileiti getur verið gosbrunnur, sem er um leið hljóðmerki. Tré, runnar og blóm geta gert sjónskertum kleift að skynja hvar þeir eru staddir, við það að finna ilm og lofthreyfingu frá gróðrinum.

Innra skipulag bygginga skal vera einfalt og rökrétt. Nota skal sama skipulag í allri byggingunni við ýmis hönnunaratriði, þannig að ekki þurfi t.d. að enduruppgötva staðsetningu ljósarofa í hverju herbergi. Raða skal lyftuhnöppum í eina talnaröð. Mikilvægt er að snagar í þröngum almenningssalernum séu ekki staðsettir þannig að hætta sé á að maður reki augað í þá.

Skörp litaskil

Samhæfa skal notkun dagsbirtu, lýsingar og lita til að gera umhverfið skýrara. Með réttri notkun lýsingar og lita má auðvelda sjónskertum að átta sig á rými, taka eftir mikilvægum byggingarhluta og forðast gildrur. Til að mynda skörp litaskil milli tveggja flata skal velja liti sem mynda dökk/ljós skil. Því er gott að nota mettaða liti með ómettuðum eða misljósa liti saman. Það eru t.d. skarpari litaskil ef notaður er ljósblár litur á dökkbláan bakgrunn en ef notaður er rauður litur á bláan með sömu mettun og litbrigðum.

Skörp litaskil má nota til að aðgreina innganga, hurðir, handlista, tröppubrúnir, dyrasíma, rofa, handföng og húna frá umhverfinu. Einnig skal merkja glerveggi og -hurðir í augnhæð fyrir börn og fullorðna.

Til að minnka skil milli birtunnar úti og inni að degi til er best að nota ljósa liti á glugga, loft og veggi og ljós gluggatjöld. Mótbirta getur framkallað glýju. Gott er að aðgreina gólf frá veggjum með dekkri lit svo allt renni ekki saman í eina heild. Einnig má setja gólflista sem aðgreinir sig í lit frá veggjum og gólfi.

Lýsing

Rétt lýsing tryggir að sjónskertir nýta sjónina betur. Nægileg lýsing, vel hönnuð ljós og rétt staðsetning þeirra eru nauðsynlegir þættir til að forðast glýju, glampa og óæskilegar sjóntruflanir vegna skuggamyndunar. Í anddyri er mikil birta mikilvæg, svo auðveldara sé að aðlagast þegar komið er inn úr dagsbirtunni.

Hljóð og hljómburður

Til að hljóð í umhverfinu komi að gagni sem leiðarvísir skal hljóðvist vera hagstæð. Hljóð frá eigin fótataki og staf er mikilvægast. Hljómburður í rými skal vera í samræmi við eðli þess og notkun, svo auðvelt sé að átta
sig á hvar maður er staddur. Flestir skynja rými með stuttum ómtíma sem lítil en rými með löngum ómtíma sem stór. Hljóðmerki geta auðveldað sjónskertum að rata að inngöngum og lyftudyrum. Allar upplýsingar, t.d. um samgöngur, skulu vera bæði mynd- og hljóðrænar.

Efst á síðu

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi