Skóli
Þjónustan felst í fræðslu og ráðgjöf til starfsfólks skóla og annarra þjónustuaðila, aðstandenda og samnemenda. Eftir þörfum er unnið í nánu samstarfi við aðra sem sinna sérfræðiþjónustu við nemendur hverju sinni.
Til að óska eftir þjónustu við leik-, grunn- og framhaldsskólanemendur er haft samband við tengilið nemandans hjá Miðstöðinni.
Þjónustan felst í því að ráðgjafar miðstöðvarinnar leggja mat á stöðu nemandans í skólanum. Á grundvelli þessa mats er unnin áætlun í samstarfi við skóla og fjölskyldu nemandans. Framkvæmd áætlunarinnar er síðan á ábyrgð viðkomandi skóla en ráðgjafar miðstöðvarinnar koma að málum eftir þörfum hverju sinni.
Framhaldsskólar