Grunnskóli

Þjónustan felst í fræðslu og ráðgjöf til starfsfólks grunnskóla og annarra þjónustuaðila, aðstandenda og samnemenda. Eftir þörfum er unnið í nánu samstarfi við aðra sem sinna sérfræðiþjónustu við nemendur hverju sinni.

Þjónustan felst í því að ráðgjafar miðstöðvarinnar leggja mat á stöðu nemandans í náminu og innan skólans, að undangenginni athugun á sjón og sjónnýtingu á miðstöðinni. Á grundvelli þessa mats er unnin áætlun í samstarfi við skólann, nemandann og aðstandendur hans. Framkvæmd áætlunarinnar er síðan á ábyrgð viðkomandi skóla, en ráðgjafar miðstöðvarinnar koma að málum eftir þörfum hverju sinni. Innihald áætlunarinnar fer eftir þörfum nemandans, stöðu hans í náminu og í skólanum. Til að óska eftir þjónustu við grunnskólanemendur er haft samband við tengilið nemandans hjá miðstöðinni.

Meðal þeirrar þjónustu sem miðstöðin veitir vegna grunnskólanemenda er:

  • mat á sjónnýtingu nemanda og stöðu hans í skólanum
  • fræðsla um sjónskerðingu og sjónnýtingu
  • athugun á umhverfi og aðgengi m.t.t. kennslu og sjálfstæðis nemanda
  • mat á hjálpartækjaþörf við nám
  • aðlögun á námskrá eða þátttaka í gerð einstaklingsnámsskráa
  • aðstoð við val á námsefni og mat á leturstærð og leturgerð
  • bein sértæk kennsla, eins og kennsla punktaleturs (blindraleturs) eða kennsla á sérstök hjálpartæki og -forrit í tölvur
  • fræðsla og aðstoð við að styrkja félagsfærni og félagsstöðu nemandans
  • hvernig nemandinn getur orðið sjálfbjarga í daglegum athöfnum (ADL)
  • aðferðir við að kenna nemandanum að rata innan- sem utandyra (umferli)
  • aðstoða við undirbúning nemanda á milli skólastiga
  • fræðsla um kennsluaðferðir sem nýtast blindum, sjónskertum og daufblindum nemendum

Leikskóli

Framhaldsskóli

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi