Leikskóli
Þjónustan felst í fræðslu og ráðgjöf til starfsfólks leikskóla og annarra þjónustuaðila, fjölskyldna og samnemenda. Eftir þörfum er unnið í nánu samstarfi við aðra sem sinna sérfræðiþjónustu við nemendur hverju sinni.
Þjónustan felst í því að ráðgjafar miðstöðvarinnar leggja mat á stöðu nemandans í leikskólanum, að undangenginni athugun á sjón og sjónnýtingu á miðstöðinni. Á grundvelli þessa mats er unnin áætlun í samstarfi við leikskólann og fjölskyldu nemandans. Framkvæmd áætlunarinnar er síðan á ábyrgð viðkomandi skóla en ráðgjafar miðstöðvarinnar koma að málum eftir þörfum hverju sinni. Innihald áætlunarinnar fer eftir þörfum nemandans, stöðu hans í náminu og í skólanum. Til að óska eftir þjónustu við leik- og grunnskólanemendur er haft samband við tengilið nemandans hjá miðstöðinni.
Meðal þeirrar þjónustu sem miðstöðin veitir vegna leikskólanemenda er:
- athugun og mat á sjónnýtingu nemanda og stöðu hans í leikskólanum
- fræðsla um sjónskerðingu og áhrif hennar á þroska
- athugun á umhverfi og aðgengi m.t.t. kennslu og sjálfstæðis nemanda
- hvernig best er að örva þá sjón sem barnið hefur
- hvernig barnið getur orðið sjálfbjarga í daglegum athöfnum (ADL)
- áhrif sjónskerðingar fyrir samskipti og samspil við leikfélagana
- val á leikföngum sem nýtast til sjón- og þroskaörvunar
- val á kennslu og þjálfunarefni
- undirbúningur og kennsla punktaleturs (blindraleturs)
- aðferðir við að kenna barninu að rata innan- sem utandyra (umferli)
- hvaða hjálpartæki og lýsing eru gagnleg fyrir barnið
- aðstoð við gerð einstaklingsnámsskrár
- undirbúningur fyrir næsta skólastig
Framhaldsskóli