Þjónusta við fjölskyldu og aðstandendur

Þjónustan er sniðin að þörfum fjölskyldu og aðstandenda. Þjónustan tekur mið þörfum einstaklingsins og sjónskerðingu hans. Lögð er áhersla á ráðgjöf, stuðning og samstarf. Leitast er við að skapa aðstæður í umhverfi fjölskyldunnar sem aðgengilegastar fyrir sjónskerta einstaklinginn.

Þjónusta við aðstandendur felst m.a. í upplýsingamiðlun um sjónskerðingu og afleiðingu hennar í daglegu lífi. Lögð er áhersla á fræðslu um mismunandi orsakir sjónskerðingar eða blindu, hvernig er að lifa með sjónskerðingunni og hvað er hægt að gera til að aðstoða og styðja einstaklinginn. Félagsráðgjafi er mikilvægur í allri þjónustu við fjölskyldu og aðstandendur.

 

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi