Umferli og áttun
Með umferli er átt við að komast leiðar sinnar á öruggan hátt, hvort heldur sem er innandyra eða utan.
Umferliskennsla felur meðal annars í sér:
- að efla umhverfisskilning
- rötun
- nýtingu hjálpartækja
- að efla líkamsvitund
- þjálfun í nýtingu skynfæra
- notkun almenningssamgangna
Sérfræðingar miðstöðvarinnar aðstoða fólk við að ná færni í því að ferðast örugglega á milli staða á sjálfstæðan hátt.