Athafnir daglegs lífs og umferli
Markmið með kennslu í athöfnum daglegs lífs (ADL) er að auka sjálfstæði og færni notanda.
Í samvinnu við sérfræðinga Miðstöðvarinnar er fundin lausn á vandamálum tengdum sjónskerðingu. Lausnin getur falist í að nota sérstök hjálpartæki og læra tækni við að gera hlutina á nýjan hátt.
Meðal þess sem sérfræðingar Miðstöðvarinnar veita aðstoð við er:
- matargerð
- borðhald
- þvottur
- þrif
- persónuleg umhirða
- skipulag
- innkaup
- skrift og lestur
Einnig eru veittar ráðleggingar um lýsingu og litaskil, ásamt vali á tækjum.
Til þess að árangur náist þarf viðkomandi að vinna með sérfræðingum í að nota hjálpartækin rétt og beita vinnubrögðum sem kennd eru.