Leiðsöguhundar

Miðstöðin hefur það hlutverk að úthluta leiðsöguhundum samkvæmt reglugerð um úthlutanir hjálpartækja. Á Íslandi eru nú 5 leiðsöguhundar en þörf er á fleiri hundum. Miðstöðin hefur sett af stað verkefni til að kaupa og þjálfa leiðsöguhunda á Íslandi í stað þess að kaupa þá erlendis frá. Ráðinn hefur verið hundaþjálfari til verkefnisins en 2 hvolpar hafa verið keyptir til þjálfunar, þau Birta og Bjartur. Auk þess hafa verið keyptir 2 unghundar, þau Ariel og Sebastian. Verið er að leita að fleiri hvolpum og unghundum en áætlað er að skila 2 leiðsöguhundum á ári. Verkefnið er dýrt og yfirgripsmikið en mikill sparnaður felst í því að kaupa og þjálfa hunda á Íslandi í stað þess að versla hundana erlendis.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi