Fagorðalisti

Hér má finna skilgreiningar ýmissa fagorða.

Abacus
Grind með kúlum til stærðfræðiiðkunar
ADL
Athafnir daglegs lífs
Birgðalisti
Listi yfir samþykkt hjálpartæki sem til eru á lager miðstöðvarinnar
Braille
Punktaletur
Daisy-spilari
Sérhannað afspilunartæki fyrir hljóðbækur
Dymo-merkivél
Notað til að búa til merkimiða (límmiða) á punktaletri
Ennislúpa
Höfuðborið stækkunargler
Ferlihjálpartæki
Stafir og önnur tæki til aðstoðar við áttun og hreyfingu
Framleiðsludeild
Deild innan miðstöðvarinnar sem sér um framleiðslu á þreifiefni, stækkuðu letri og punkaletri
Göngustafur
Hefðbundinn stafur sem veitir stuðning og jafnvægi en er hvítur á lit
Hjálpartæki
Hverskonar tæki sem auðveldar notendum miðstöðvarinnar að takast á við hin ýmsu verkefni daglegs lífs
Kíkisgleraugu
Gleraugu með litlum kíki sem festur er við annað eða bæði glerin
Litaskil
Andstæðir litir (contrast)
Litaskynjari
Talandi tæki sem nemur liti
Merkistafur
Hvítur sambrjótanlegur stafur, frekar lítill, einkum ætlað að "merkja" notandann sem blindan eða sjónskertan.
Ósamþykkt hjálpartæki
Hjálpartæki sem óskað er eftir en er ekki á úthlutunarlista miðstöðvarinnar
Perkins-vél
Ritvél til að skrifa punktaletur
Punktaleturslyklaborð
Tengt við tölvu til innsláttar á punktaletri. Svipar til Perkins-vélar
Punktaletursskjár
Tæki sem tengt er við tölvu sem umbreytir texta af skjá í punktaletur
Ráðgjafi
Starfsmaður miðstöðvarinnar sem sinnir þjónustu við blinda og sjónskerta einstaklinga, ýmist með tilliti til umferlis, ADL eða stuðnings í skóla
Samlestrarefni
Bók með þreifiefni og svartleturstexta, eða svartleturstexti með upphleyptri glæru yfir
Samlokutæki
Stækkunartæki sem hægt er að leggja saman (ferðatæki)
Sjónvottorð útfyllt á netinu
Vottorð gefið út af augnlækni utan miðstöðvarinnar
Skjálúpa
Stækkunargler sem tengt er við sjónvarp. Mynd af því sem er undir lúpunni birtist á skjánum
Skjástýriforrit
Forrit sem breytir hluta sjónrænna upplýsinga yfir í tal eða punktaletur
Snertilinsur
Linsur sem settar eru inn í augað í stað þess að nota gleraugu
Stafrænt efni
Lesefni á tölvutæku formi
Stækkunarbúnaður
Hverskonar búnaður sem tengdur er við skjá eða tölvu
Stækkunarforrit
Hugbúnaður í tölvu sem stækkar það sem kemur upp á skjánum
Stækkunarmús
Lítur út eins og tölvumús. Inni í músinni er myndavél. Tengist sjónvarpi og notuð til stækkunar á því sem er undir músinni
Stækkunartæki
Lestæki með innbyggðri myndavél og skjá, til stækkunar
Svanaháls
Stækkunartæki á armi sem tengdur er við tölvu (án skjás). Birtir nær- og fjærmyndir
Tengiliður
Hver notandi miðstöðvarinnar hefur tengilið innan hennar sem samhæfir þjónustu við hann. Fyrirspurnum notanda er beint til tengiliðar.
Umferli: Tveir meginþættir:
1. Áttun (að staðsetja sig í umhverfi) 2. Að ferðast á milli staða (mobility)
Úttakshugbúnaður
Stækkunarforrit og talgervlar í tölvur eða síma
Vasastækkunartæki
Lítið tæki með myndavél og skjá, notað til stækkunar
Visus
Sjónskerpa (t.d. 1/60)
Þjónustuáætlun
Heildstæð áætlun um þjónustu við einstakling sem unnin er eftir grunnmat á þörfum. Áætlunin er unnin í samvinnu við notandann.
Þreifiefni
Sjónrænt efni (t.d. myndir og kort) sem er upphleypt
Þreifistafur
Hvítur stafur, frekar langur, oftast sambrjótanlegur. Notaður í umferli til að gefa upplýsingar um hindranir og breytingar í vegi þess sem ber stafinn.

Efst á síðu.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi