Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að skipa Huld Magnúsdóttur forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, til næstu fimm ára frá 1. mars næstkomandi.

Alls bárust 25 umsóknir um stöðuna. Ráðningarfyrirtækið Capacent aðstoðaði ráðuneytið við faglega úrvinnslu og mat á hæfni umsækjenda.

Fram kemur á vef ráðuneytisins að Huld hefur starfað hjá Össuri hf. í 15 ár. Hún hefur langa stjórnunarreynslu að baki og undanfarin ár hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri framleiðslu- og dreifingarsviðs Össurar í Bandaríkjunum. Hún  er með BA próf í alþjóðasamskiptum frá University of Sussex í Englandi og hefur samhliða starfi sínu í Bandaríkjunum stundað meistaranám í viðskiptum við Viðskiptaháskólann á Bifröst.

Þjónustu- og þekkinarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga er ný stofnun sem tók til starfa 1. janúar síðastliðinn.