Blindrafélagið hefur tekið ákvörðun um að hafa forgöngu um smíði á nýjum íslenskum talgervli (Text To Speach Engine eða TTS) sem stenst samanburð við það besta sem þekkist í erlendum málum.

Meðal aðila sem koma að verkefninu eru Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga og Velferðarráðuneytið, sem  fyrir hönd Framkvæmdasjóðs fatlaðra styrkir verkefnið um 15 milljónir króna. Þessi styrkur er veittur með því skilyrði að talgervilinn verði til afnota án endurgjalds fyrir Þjónustumiðstöðina, Blindrabókasafnið og alla þá sem eru skráðir notendur þessara stofnanna og þurfa á talgervli að halda. 

Nánar um talgervlaverkefnið