Slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu sitja nú námskeið til að kynna sér aðferðir fyrir blinda við að rata og átta sig á umhverfinu, m.a. með notkun hvíta stafsins. Kenndar eru leiðir við að skynja hljóð og rými með nýjum aðferðum sem geta komið sér vel við reykköfun. 

Námskeiðin eru samstarfsverkefni Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) og Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga og eru haldin í kjölfar þess að fulltrúar beggja sóttu námskeið í Búdapest í Ungverjalandi í lok síðasta árs og fengu þjálfun í leiðsögutækni, áttun og umferli blindra. Um er að ræða aðferð sem hefur verið þróuð af Blindraskólanum í Búdapest í samvinnu við Slökkvilið Búdapestborgar eftir að slökkviliðsmenn þar létu lífið þegar þeir fundu ekki útleið á eldstað.

Áhersla er lögð á verklegar æfingar til að átta sig á umhverfi, stærð rýmis, leiðum til að kanna svæði og notkun hvíta stafsins sem hjálpartæki fyrir slökkviliðsmenn í reykköfun. Verkefnið er unnið með stuðningi frá Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB sem veitti styrk til verkefnisins.

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga sinnir ráðgjöf og endurhæfingu fyrir sjónskerta, blinda og daufblinda á Íslandi en það eru um 1500 manns. Miðstöðin heyrir undir Velferðarráðuneytið og markmið starfseminnar er að auka möguleika þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða daufblindir til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra, með áherslu á stuðning til náms, sjálfstæðs heimilishalds, virkra tómstunda og atvinnuþátttöku.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. (SHS) sinnir slökkvistarfi, sjúkraflutningum, forvörnum, almannavörnum og öðrum verkefnum sem stjórn SHS ákveður hverju sinni og varða velferð íbúa. Stofnendur og eigendur SHS eru sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarneskaupstaður og Álftanes.  Slökkviliðið veitir einnig þjónustu við Kjósarhrepp og hefur skyldur um aðstoð við nærliggjandi sveitarfélög samkvæmt starfssamningum.  Starfssvæðið nær því frá Hvalfjarðarbotni í norðri, til Straumsvíkur í suðri og Bláfjallasvæðisins í austri.  Íbúar á starfssvæðinu voru um 201 þúsund í ársbyrjun 2010 eða um 63% landsmanna.