Fimm fengu styrk úr Þórsteinssjóði

Fimm blindir og sjónskertir stúdentar við Háskóla Íslands fengu á
dögunum styrk úr Þórsteinssjóði. Þetta er í sjöunda skipti sem úthlutað
er úr sjóðnum og nemur upphæð styrkjanna samtals tólf hundruð þúsund
krónum, að því er fram kemur á heimasíðu Blindrafélagsins.

Megintilgangur Þórsteinssjóðs er að styrkja blinda og sjónskerta
stúdenta til náms við Háskóla Íslands. Enn fremur er sjóðnum ætlað að
efla rannsóknir sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn og
afleiðingum hennar og fjölga þannig tækifærum blindra og sjónskertra til
að auðga og efla líf sitt. Sérstök áhersla er lögð á styrki til
rannsókna í félags- og hugvísindum sem falla að tilgangi sjóðsins.

Í ár hlutu fimm nemendur námsstyrki: Ásdís Lilja Guðmundsdóttir, nemi
í næringarfræði, Hekla Dögg Ásmundsdóttir, nemi í félagsráðgjöf, Helga
Theódóra Jónasdóttir, nemi í sálfræði, Rósa María Hjörvar, nemi í
þýðingafræði, og Snædís Rán Hjartardóttir, nemi í stjórnmálafræði. Jón
Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, afhenti styrkina við
hátíðlega athöfn í Norræna húsinu.

Sjóðurinn var stofnaður af Blindravinafélagi Íslands 6. desember 2006.
Hlutverk og tilgangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins
Bjarnasonar, sem fæddist 3. desember árið 1900. Hann stofnaði
Blindravinafélag Íslands 24. janúar 1932 og var það fyrsti vísir að
félagi til hjálpar fötluðu fólki hér á landi. Þórsteinn helgaði líf sitt
blindum og sjónskertum einstaklingum á Íslandi á síðustu öld án þess að
þiggja nokkru sinni laun fyrir heldur lagði félaginu þvert á móti til
fé úr eigin vasa.